Það verður að læra að lifa...einhvernveginn

Margt smátt frá Englandi

13.2.2008 05:14:37 / Sunna

Súnna- og sjía-múslimar

Munurinn í einföldu máli....

Á 7. öld klofnaði múhameðstrú í tvennt líkt og kristnin um 1500. Var aðallega deilt um hver ætti að taka við af spámanninum Múhameð (ég birti ekki mynd af eðlilegum orsökum ;))

Sjía – múslimar telja að múhameð hafi verið síðasti spámaðurinn en eigi sér andlega arftaka sem nefnist imamar þeir eiga að hafa betri skilning hvernig á að túlka kóraninn og sjá dulin boðskap sem venjulegir menn sjá ekki.

Súnní – múslimar telja að ekki sé neinn imamar og allir geti lesið kóranin sem vilja það og ekki sé um neinn hulin boðskap að ræða.

Meiri hluti múslima eru Súnni – múslimar, um 90%, en í Írak, Íran og Afganistan eru Sjíar flestir.

Saddam Hussein var súnní en meirihluti íraks var síjar og ofsótti hann þá linulaust. Sjíar voru því vita fegnir þegar Saddam var settur af. Ástandið er þó á margan hátt verra í dag þar sem Írakar vita ekki hverjir eru í ónáð og hvers vegna þar sem línurnar voru skýrari áður vegna trúarbragðana. Í dag eru það “óvinir ríkisins og hersetuliðsins” sem eru í ónáð en ekki er alltaf ljóst hverjir það eru.



Við
Við heitum Sunna og Hjalti og búum í augnablikinu í London, Englandi. Sunna er að læra almannatengsl og Hjalti er að vinna hjá Icelandair
Skrítið