02.02.2009 00:35:17 / Sunna
Álitsgreinar í London
Bretar geta verið með stórkostlegan húmor.
Ísland virðist eiga upp á pallborðið hjá þeim þessa dagana sem brandari sem ekki verður ofnotaður.
Einn skrifaði um Ísland sem betlpening sem engin vill, og allir fegnir að losna við....
Annar skrifaði um að "Do an Iceland" semsé verða gjaldþrota....
Ég hef mikið verið að hugsa um ábyrgð mína í þessu, getur maður borið við þekkingarleysi á aðstæðum eða upplýsingaleysi? Ég kemst alltaf að þeirri niðurstöðu að svo sé ekki, verð samt að játa að tilhugsunin að koma heim og skulda 30.000 pund fyrir ákvarðanir sem voru ekki mínar er vægast sagt ekki freistandi og ég stend sjálfan mig að því að hugsa "... ég er ekkert á leiðinni heim næstu áratugina..."
Ábyrgð mín er að ég held að kjósa ekki að skila inn auðu í öllum þeim kosningum sem ég hef tekið þátt í og mótmæla þeim sem voru ekki að setja rétt lög á þeim tíma einnig hefði ég getað keypt hlutabréf í bönkunum og hinum ýmsu fyrirtækjum og lagt fram athugasemdir vegna útlána og ábyrgðar.
Ég á hins vegar nokkur bréf í sparisjóði og það liggur sú hugsun hjá mér að leggja fram fyrirspurn um ábyrgðir á lánum og hvort stunduð hafi verið það brjálæði sem maður les aftur og aftur í fjölmiðlunum.
-S-