Teymis fréttin sem var með þeim síðustu í fréttatíma Stöðvar tvö í kvöld, það er samt ekki það merkilega. Tók einhver eftir því hvað vantaði í þá frétt?
Vaknaði í morgun með frekar sokkin augu, Hjalti var svo sofandi að hann tók ekkert eftir því að helmingurinn hans kvaddi hann með tæplega opin augu en þó vakandi, segir það meira um svefnvenjur mínar eða athygli hans kannski?

Er að velta fyrir mér að kíkja til læknis ef þetta kemur aftur, í eitthvað verður gjaldeyrisforði Seðlabankans að fara í og þetta telst líklega með verðugri málefnum.
Verð að játa að ég varð ógurlega reið út í Sigurð Kára í Kastljósinu fyrir áramót, fannst eins og hann væri miðaldara skrifstofubrók. Hann er líklega eini stjórnmálamaðurinn sem mér hefur líkað virkilega illa við, ok kannski ekki hann persónulega enda þekki ég hann ekkert en hvernig hann tekur á áríðandi máli finnst mér ekki til eftirbreytni.
Hann virtist ekki vera tilbúin að berjast fyrir námsmenn sem vilja ekkert meira en að geta lokið námi sínu, hann hefur eflaust hlotið nokkur atkvæði þeirra í síðustu kosningum en ég segi að fyrir mitt leiti vill ég ekki fórna mínu atkvæði fyrir hans flokk verði hann þar áfram, frekar vill ég Katrínu.
Kemur þetta ekki alltaf út á það hvern þú myndir vilja hafa með þér í skotgröf? Hver berst fyrir þínum lífsgæðum og þeirra sem þér þykir vænt um?
-S-
P.s stöð 2 "gleymdi" að leita eftir athugasemdum frá öðrum en forstjóra Teymis, hann var sá eini sem fékk að koma í mynd og segja skoðun sína. Að minnsta kosti horfir það þannig við hjá mér sem veit ekki betur enda kom það ekki fram í fréttinni að leitað hefði verið eftir viðtali við talsmann samkeppniseftirlitsins.
p.p.s HVAÐ er ég að gera í UK, 8 stiga HITI á morgun á Íslandi!!!