Það verður að læra að lifa...einhvernveginn

Margt smátt frá Englandi

22.03.2009 01:58:12 / Sunna

Árshátíð Icelandair:)

Við nutum þess að kíkja heim yfir langa helgi og sjá ættingja og vini síðustu helgi. Á meðan hinsvegar kom vorið í London 17 gráður og notalegheit, við misstum ekki alveg af því þar sem það er búið að vera 13 stig út vikuna og jakkaveður :)

Tók þessa mynd á miðvikudagsmorgun á leiðinni í skólann léttklædd

Kirsuberjatréin eru að blómstra á fullu og páskaliljurnar á síðasta snúningi :)

Annars var árshátíðin mjög skemmtileg, hóflegri en í fyrra en eiginlega mikið betri stemning. ég setti nokkrar myndir inn á Flickr
http://www.flickr.com/photos/sunnagm/

ein góð af okkur Hjalta í 60s stofunni (þemað var 50s-60s) :)

takk fyrir okkur, komum vel fóðruð tilbaka :D
-S-


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.03.2009 23:32:51 / Sunna

Skuldir Íslands

Skuldir Íslands eru kannski ekki svo miklar miðað við aðrar þjóðir

Ef við miðum við 3 milljónir á mann  fyrir bankahrunið, tala sem ég heyrði einhvern tímann fleygt þá skuldar hver Íslendingur m.v gengi dollaran í dag um 26.000 dollara + skuldir ríkis sem voru um 25% af GDP sem er c.a. 10.000 = 36.000 dollara, hver Bandaríkjamaður 36.000 dollara (4 milljónir ísk) og  hver Breti um 15.000 (1,7 milljón isk). Hér er svo kort hversu mikið hver þjóð skuldar miðað við GDP reiknað í prósentu.

http://cluaran.free.fr/debt.html 


NB. Bandaríkin eru reyndar komin upp í 75-77% mv. það sem ég hef lesið og flestar þjóðir verr settar núna heldur en þegar þetta kort er gert, getum amk gert ráð fyrir því að þær verst settu sk. kortinu séu ekki betur settar síðan þessi kreppa byrjaði.

http://en.wikipedia.org/wiki/List_of_countries_by_public_debt
hér er svo linkur á Wilkipedia þar sem er tekið saman tölur af CIA factbbok og OECD og IMF, merkilegt að skoða báða endana þar sem þar eru ólíkleg lönd (einnig óuppfært þar sem Ísland er með 25% skuld miðað við GDP þar). ef við hinsvegar snúum þessu í 200% af GDP þá skuldum við 120.000 dollara per íbúa (um 13 milljónir iskr, var um 1 milljón iskr fyrir hrun). en þá er það sé miðað við verstu mögulega útkomu sem ég hef lesið um.

spurning hvernig skuldir m.v GDP verður á næsta ári hjá heiminum þegar nýjustu tölur koma inn?

-S-

E.s Ég notaði cia factbook, wiki, skuldaklukkur ýmisa ríkja og fjölmiðla til þess að finna þetta út, ábyrgist ekki neitt þar sem ég er hræðileg í stæ en langaði að vita á mannamálið hvað var verið að ræða um. flestar erlendar GDP tölur eru frá 2007-2008.

Í lokin svo til þess að hressa sig í öllu þessu dúúúm og glúúúm ,Obamavídjó síðan hann var hjá Jay Leno  :)
partur 1
partur 2
partur 3 

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.03.2009 21:17:55 / Sunna

Enron - tími frá hruni til ákæru

Ég hef mikið verið að pæla í óþolinmæði minni gagnvart þessu hruni og uppgjöri við almenning. Hvað gerðist nákvæmlega sem olli þessu og hver tók þessar ákvarðanir sem leiddu til þessarar afleiddu stöðu bankanna.

Svo fór ég að hugsa þetta betur. Í Enron hneykslinu þá tók það ákæruvaldið nokkur ár að greiða úr fjármálaflækjunum sem einkenndu þann rekstur.

Ég gróf upp hvað það tók nákvæmlega langan tima
Oct 2001, hrun á bréfum Enron og ljóst að fyrirtækið er í verulegum vandræðum
2. Dec 2001, Enron sækir um kafla 11 (gjaldþrotaskipti)

febrúar 2002 - hluti starfsmanna Enron fá friðhelgi gegn því að vitna
ágúst 2002 - eignir CFO hjá Enron Androw Fastow frystar
2. Oct 2002 - Fastow ákærður

Febrúar 2004 - Jeffrey Skilling gefur sig fram við yfirvöld og ákærður, var CEO, COO og framkvæmdarstjóri hjá Enron.

Júlí 2004 - Kenneth Lay gefur sig fram og ákærður, var CEO Enron á undan Skilling, sat í stjórn fyrirtækisins.

Janúar 2006 - dómsmál hefst gegn Lay og Skilling

Lay - dó áður en afplánun hófst
Skilling - dæmdur í 24 ára fangelsi
Fastow - dæmdur í 10 ára fangelsi en var minnkað í 4 ár vegna mikillar samvinnu við yfirvöld. 

http://www.washingtonpost.com/wp-dyn/articles/A25624-2002Jan10.html

held að það muni taka okkur nokkur ár, ef  ekki áratug að jafna okkur eftir þetta áfall.

Ég hugsa samt mest til þeirra sem munu líða skort á lífeyri á komandi árum, enda held ég að ríkið muni ekki geta hjálpað mikið.

-S-
Situr heima með ofurkvef og Enron á heilanum.


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.03.2009 09:49:26 / Sunna

Grænt skyr eða búðingur í þetta skiptið

það var verið að skvetta grænum búðing á lord Mandelson rétt í þessu, ætli það séu einhver tengsl milli þess og græna skyrsins sem er verið að svetta á Íslandi?

Mótmælandinn sem svetti var að mótmæla stækkun flugvalla í London og global warming, Hún var samt eiginlega hálf vandræðaleg með þetta allt saman, Mandelson hinsvegar hló fannst þetta bara fyndið.


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.02.2009 15:15:50 / Sunna

ÓSKARINNNNN

Verð að játa að það er ógurlega gaman hjá mér sl. vikur Bafta, óskarinn og Brit awards.

Ég er búin að velja uppáhaldsflíkurnar mínar. Held raunar að ég sé ekki á sömu blaðsíðu og bresku gagnrýnendurnir því mínir uppáhaldskjólar eru "miss" hjá þeim. Kannski er það vegna þess að uppáhalds kjólarnir mínir eru franskir, Chanel í fyrra Dior í ár) en það er auðvitað bara endalaus rígur þeirra.á milli.

SJP, Slumdog millioner leikkonan og Heidi Klum voru í uppáhalskjólunum en Angelina Jolie var fallegasta kjólnum í ár á BAFTA hérna í UK


Dior


Roland Mouret.


John Galliano

uppáhaldskjólinn minn Armani Privé

Jæja farin að lesa um Enron

-S-


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.02.2009 23:26:21 / Sunna

Enron

Er búin að vera að læra um Enron í skólanum, varð ekki á undan Dr. Gunna en ég sé margt líkt með Íslandi og Enron.

Hérna er mynd/bók um Enron - the smartest guys in the room

Helgin var annars notaleg, fórum í göngutúr upp á Primrose hill sem er rétt hjá okkur og ég sá yfir "alla" Lundúnir, mjög gaman að sjá. Það var um 10 sitga hiti og mjög notalegt úti á léttum jakka, verð að elska veðrið þessa dagana, það er pilsvænt og næstum of heitt til þess að vera í stígvélum :)

JEYYY svo er Óskarinn í kvöld hlakka til þess að sjá kjólana :)

-S-


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.02.2009 22:02:53 / Sunna

Heimsóknir

Við erum búin að vera svo heppinn síðustu helgar að fá skemmtilegar heimsóknir.

Marta og Helgi kíktu með Hinrik í stutta helgarheimsókn, þau voru reyndar upptekin en við Hjalti áttum gott spjall við Hinrik sem var mjög hress og í góðu skapi, það er þangað til hann varð svangur. ;)

Síðustu helgi kom svo Ragnheiður nýtvítuga mærin og hressti úr okkur slenið. tókum maraþonið um bæinn og skelltum okkur í gallery og á söfn. Fórum meðal annars á Saatchy galleríið í Kensington þar sem listamenn frá miðausturlöndum vorum með sýningu. Mjög gaman að sjá hvað er ofarlega í huga þeirra.

Ég setti nokkrar myndir á flickr og svo auðvitað feisbúkk en ég ætla ekki að setja linkinn á safnið meðal annars vegna þess að heimasíðan þeirra er ekki góð.

Að lokum eru myndir af systkinunum :) krúttleg í bleiku og ljósbláu

-S-





» 0 hafa sagt sína skoðun

02.02.2009 16:14:56 / Sunna

Skautað um London



Setti myndir á Flickr myndasíðuna mína sem ég tók í London í dag, snow day :)

Reyndi að lifa eðlilega, ætlaði út í búð og banka en mætti þar miðum sem á stóð "lokað vegna virkilega slæms veðurs"

haha

kveðja
Sunna




» 2 hafa sagt sína skoðun

02.02.2009 11:10:08 / Sunna

Allt lokað í London - With love from Russia

Þetta er víst mesti snjór í 18 ár!
Veður sem  kemur frá Rússlandi og á að hanga út vikuna

Ég og Hjalti vöknuðum í morgun við nágrannana hrópandi og kallandi í snjókasti, þau  voru að skemmta sér ótrúlega vel.

Ég ætla að hoppa í föt og rölta út í Regent park og taka nokkrar myndir á leiðinni,

meðan ætla ég að leyfa ykkur að sjá út um gluggan minn :)

sé fyrir mér að það væri business as usual heima á Íslandi, með þennan litla snjó :p

kveðja
-S-




» 0 hafa sagt sína skoðun

02.02.2009 00:35:17 / Sunna

Álitsgreinar í London

Bretar geta verið með stórkostlegan húmor.

Ísland virðist eiga upp á pallborðið hjá þeim þessa dagana sem brandari sem ekki verður ofnotaður.

Einn skrifaði um Ísland sem betlpening sem engin vill, og allir fegnir að losna við....

Annar skrifaði um að "Do an Iceland" semsé verða gjaldþrota....

Ég hef mikið verið að hugsa um ábyrgð mína í þessu, getur maður borið við þekkingarleysi á aðstæðum eða upplýsingaleysi? Ég kemst alltaf að þeirri niðurstöðu að svo sé ekki, verð samt að játa að tilhugsunin að koma heim og skulda 30.000 pund fyrir ákvarðanir sem voru ekki mínar er vægast sagt ekki freistandi og ég stend sjálfan mig að því að hugsa "... ég er ekkert á leiðinni heim næstu áratugina..."

Ábyrgð mín er að ég held að kjósa ekki að skila inn auðu í öllum þeim kosningum sem ég hef tekið þátt í og mótmæla þeim sem voru ekki að setja rétt lög á þeim tíma einnig hefði ég getað  keypt hlutabréf í bönkunum og hinum ýmsu fyrirtækjum og lagt fram athugasemdir vegna útlána og ábyrgðar.

Ég á hins vegar nokkur bréf í sparisjóði og það liggur sú hugsun hjá mér að leggja fram fyrirspurn um ábyrgðir á lánum og hvort stunduð hafi verið það brjálæði sem maður les aftur og aftur í fjölmiðlunum.

-S-








» 0 hafa sagt sína skoðun

28.01.2009 23:54:10 / Sunna

Húsmóðir í London

Eftir að kreppan skall á hef ég nýtt þekkinguna mína sem ég hef sankað að mér í gegnum árin til þess að komast af með ódýrari hætti. Ég hef lagað og bætt, eldað frá grunni og það nýjasta er að prjóna.

Þessi ágætis þekking sem ég hef aflað mér með lestri á gömlum barnabókum frá systrum móður minnar hafa komið sér ágætilega. sem og pælingar mínar og veruleg hræðsla við KREPPU  í æsku er að koma sér virkilega vel núna.

Ég hef tekið upp á því að verða algjör 50s húsmóðir, ég tek til og elda á kvöldin, baka ef til vill eins og eina köku og sit og prjóna meðan betri helmingurinn minn eldar.

Verð samt að játa að skólinn hristir vel upp í þessu enda sé ég ekki fyrir mér að geta gert þetta á hverjum degi án tilbreytingar, það er ekki eins og ég búi í despó þætti.:lol:

Það er samt eins og ég hafi alltaf gert mér grein fyrir að ekkert er varanlegt, frá kreppu undirbúningi yfir í óeðlilegan áhuga á gömlum húsráðum þá er það allt að gagnast mér núna. Húrra fyrir  því að passa ekki í kassa hins almenna.

-S-







» 0 hafa sagt sína skoðun

19.01.2009 00:51:56 / Sunna

Safnaleiðangur

Ég hef ákveðið að ýta burt hugsunum um kreppuna sem eiga óneitanlega hug minn aftur þessa dagana. Ég fékk skilaboð áðan á feisbúkkinu að sænskir þingmenn sýni ástandinu heima áhuga, ég er ekki viss um að ég vilji blanda öðrum þjóðum inn í deilur innanlands um kosningar og spillingu...

ENN yfir í annað og skemmtilegri hluti :)

Ég er búin að skella mér á tvær sýningar síðastliðina daga.

Fyrst ákvað ég að fara og skella mér á National Portrait Gallery, eitthvað sem ég hef ætlað mér lengi en einhvern veginn ekki gert. Stóðst algjörlega undir væntingum og meira en það. Ég tímdi reyndar ekki að spreða 10 pundum og fara á Annie Leibovitz, námsmenn mega ekki við því á þessu síðustu og verstu tímum ;)

Ég var lang hrifnust af málverkum í Tutor herberginu þar sem konurnar voru í flóknum og fallegum kjólum, sér í lagi Elísabet I Bretlandsdrottning

Svo voru líka skemmtilegir textar sem fylgdu með, staðreyndir og annað sem vakti áhuga eins og fróðleikur um málverkin frá þessum tíma, hvernig þau voru máluð og sum fjöldaframleidd vegna eftirspurnar.

Hin sýningin var síðan War and Medicine sem við Hjalti fórum á hjá the Wellcome Trust.

Þar var farið ofan í saumana á hinum ýmsu hliðum sem snúa að lækningum, aðhlynningu, framförum í lækningum, heilsufari og hvað var gert og hvað er gert fyrir hermenn sem snúa aftur úr stríði særðir.

Meðal annars það sem vakti áhuga og athygli okkar Hjalta var það að við höfðum aldrei hugsað út í það að hermenn sem hafa minni háttar meiðsli hlutu og hljóta að því sem við höldum ennþá fyrst aðhlynningu til þess að þeir fari sem fyrst aftur að berjast. Við fengum að sjá merkispjöldin sem sett eru á hermenn og hvaða sjúkdómar herjuðu á herina frá krímstríðinu til dagsins í dag í Írak og Afganistan.

Við sáum líka hvernig lýtalækningum fór fram, hvernig læknar notuðu  hina ýmsu líkamsparta til þess að laga það sem hafði verið sprengt af andlitum hermanna. Alveg hreint ótrúlegar myndir!

Við tókum með okkur heim póstkort og nauðsynlega þekkingu til þess að lifa af kjarnorkuárás sem felst m.a í því að:
Vera í hvítum fötum, hafa mat og birgðir til 14 daga inniveru og hvernig á að losa okkur við lík sem kom í formi skemmtilegs fræðslumyndbands frá c.a 1970. skemmtilega retro með grafík og hljóðum sem vöktu ómælda kátínu :lol:

Hérna er linkur á videoið, ég fann það á Youtube (you have got to love youtube! :) ) bendi sérstaklega á endinn þegar logoið kemur "protect and survive" yndislegt stefið sem fylgir



» 1 hafa sagt sína skoðun

07.01.2009 19:41:43 / Sunna

Hattarinn

Hatta sýning byrjar í lok febrúar á V&A safninu, ííkkk get ekki beðið þessi lofar góðu :)

"This exhibition in the Porter Gallery will display more than 300 hats chosen with the expert eye of a milliner. On display will be hats ranging from an Egyptian Anubis mask dating from 600BC to a 1950s Balenciaga hat and couture creations by Jones and his contemporaries."




það sem verður til sýnis....


1. the first section of the exhibition, will open with Prince Albert’s top hat and Queen Victoria’s bonnet, and looks at how the past has inspired countless designers. It will show historic and contemporary interpretations of hat styles such as the tricorn, bowler, baseball cap, bonnet, skull cap and many more. It will also look at common themes explored by milliners such as exoticism, modernism and the natural world.


2. Creation will show how hats are made and the traditions, innovations and practices at the heart of millinery. This area will be set up like a milliner’s workroom with patterns, sketches, materials and millinery blocks.


3. The Salon will reflect the milliner’s public showcase, featuring spectacular hats that show the craft at its sartorial best. On display will be designs by Philip Treacy, Mitza Bricard for Christian Dior, Vladzio d’Attainville for Balenciaga, Claude St Cyr for Norman Hartnell, Chanel and Stephen Jones.


4. In The Client, visitors will see hats worn by famous clients including royalty and avid collectors Dita von Teese, Gertrude Shilling, Isabella Blow and Anna Piaggi, as well as hats worn by Boy George and Madonna. There will also be hats that have appeared in films including two designed by Cecil Beaton for My Fair Lady, a Balmain hat worn by Ava Gardner and Marlene Dietrich’s beret.


24. feb - 31. maí 2009


spennó :haha: />

-S-


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.01.2009 19:15:20 / Sunna

Fréttaflutningur eina ferðina enn

Teymis fréttin sem var með þeim síðustu í fréttatíma Stöðvar tvö í kvöld, það er samt ekki það merkilega. Tók einhver eftir því hvað vantaði í þá frétt?

Vaknaði í morgun með frekar sokkin augu, Hjalti var svo sofandi að hann tók ekkert eftir því að helmingurinn hans kvaddi hann með tæplega opin augu en þó vakandi, segir það meira um svefnvenjur mínar eða athygli hans kannski? :lol:

Er að velta fyrir mér að kíkja til læknis ef þetta kemur aftur, í eitthvað verður gjaldeyrisforði Seðlabankans að fara í og þetta telst líklega með verðugri málefnum.

Verð að játa að ég varð ógurlega reið út í Sigurð Kára í Kastljósinu fyrir áramót, fannst eins og hann væri miðaldara skrifstofubrók. Hann er líklega eini stjórnmálamaðurinn sem mér hefur líkað virkilega illa við, ok kannski ekki hann persónulega enda þekki ég hann ekkert en hvernig hann tekur á áríðandi máli finnst mér ekki til eftirbreytni.

Hann virtist ekki vera tilbúin að berjast fyrir námsmenn sem vilja ekkert meira en að geta lokið námi sínu, hann hefur eflaust hlotið nokkur atkvæði þeirra í síðustu kosningum en ég segi að fyrir mitt leiti vill ég ekki fórna mínu atkvæði fyrir hans flokk verði hann þar áfram, frekar vill ég Katrínu.

Kemur þetta ekki alltaf út á það hvern þú myndir vilja hafa með þér í skotgröf? Hver berst fyrir þínum lífsgæðum og þeirra sem þér þykir vænt um?

-S-

P.s stöð 2 "gleymdi" að leita eftir athugasemdum frá öðrum en forstjóra Teymis, hann var sá eini sem fékk að koma í mynd og segja skoðun sína. Að minnsta kosti horfir það þannig við hjá mér sem veit ekki betur enda kom það ekki fram í fréttinni að leitað hefði verið eftir viðtali við talsmann samkeppniseftirlitsins.

p.p.s HVAÐ er ég að gera í UK, 8 stiga HITI á morgun á Íslandi!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.01.2009 16:05:19 / Sunna

Fínt að koma heim og fara svo aftur.. heim

jæja þá er kona og maður komin heim

Skil samt ekki afhverju við fórum því það er kaldara hérna en heima á Íslandi...
Fór í útilegu/jöklaklifurs gallann minn í dag og rölti út á lestarstöð. Bitin í kinnum og með rautt nef náði ég naumlega á áfangastað.

heyri betur í ykkur þegar puttarnir hafa þiðnað betur.
-S-


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9
Við
Við heitum Sunna og Hjalti og búum í augnablikinu í London, Englandi. Sunna er að læra almannatengsl og Hjalti er að vinna hjá Icelandair
Skrítið